6 Slík var einnig reynsla Abrahams. Guð lýsti hann réttlátan fyrir það eitt að hann trúði loforðum Guðs. 7 Af þessu getið þið séð að hinir raunverulegu afkomendur Abrahams eru þeir sem trúa á Guð og treysta honum heilshugar.
8,9 Auk þessa benti Biblían fram til þess tíma, er Guð mundi einnig frelsa heiðingjana vegna trúar þeirra. Fyrir löngu sagði Guð við Abraham: „Eins og ég hef blessað þig, svo mun ég og blessa aðra þá sem mér treysta, hverrar þjóðar sem þeir eru." Af þessu er auðséð að allir sem treysta Kristi, fá hlutdeild í blessun Abrahams.