Pular para o conteúdo
Publicidade

Galatabréfið 4:21-26

21 Hlustið nú vinir mínir, þið sem álítið að þið þurfið að hlýða lögum Gyðinga til að frelsast. Hvers vegna reynið þið ekki að skilja tilgang laganna? 22 Í Biblíunni segir að Abraham hafi átt tvo syni, annan með Hagar, en hún var ambátt, og hinn með Söru, frjálsborinni konu sinni. 23 Það var ekkert óvenjulegt við fæðingu barnsins sem Hagar eignaðist, en barn frjálsu konunnar fæddist samkvæmt sérstöku loforði sem Guð hafði gefið. 24,25 Þessi frásaga sýnir ljóslega þær tvær leiðir sem Guð fer til að hjálpa fólki. Önnur var sú að gefa því lög til að fara eftir. Það gerði hann á Sínaífjalli þegar hann gaf Móse boðorðin tíu. Sínaífjall er reyndar kallað Hagarfjall af Aröbum. Í myndinni sem ég er að draga upp, táknar Hagar, hin þrælborna kona Abrahams, Jerúsalem, höfuðborg Gyðinga, en hún er miðstöð þeirra kenninga sem segja að við getum þóknast Guði með því að hlýða boðorðunum. Og Gyðingarnir, sem aðhyllast þessa skoðun, eru börn hennar – fædd í þrældómi. 26 Okkar höfuðborg er hins vegar hin himneska Jerúsalem og sú borg er ekki þrælkuð af lögum Gyðinga.

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.