Publicidade

Gálatas 4

1 Þið vitið ef faðir deyr og eftirlætur ungum syni sínum mikil auðæfi, þá er barnið lítið betur statt en þræll meðan það vex úr grasi, enda þótt það hafi erft allar eigur föður síns. 2 Barnið verður gera það sem forráða- og fjárhaldsmenn þess segja, þar til það nær þeim aldri sem faðir þess tiltók.

Guð keypti okkur frelsi

3 Við vorum í svipaðri aðstöðu áður en Kristur kom, undir lögum og reglum Gyðinga, því við töldum það einu leiðina til hjálpræðis. 4 En þegar rétti tíminn kom, sem Guð hafði ákveðið, þá sendi hann son sinn. Hann fæddist af konu sem Gyðingur og varð lúta öllum lögum Gyðinga, 5 til kaupa okkur frelsi, okkur sem voru þrælar laganna, svo hann gæti ættleitt okkur gert okkur börnum sínum. 6 Og fyrst við erum börn hans, þá sendi hann anda sonar síns í hjörtu okkar og því getum við með sanni sagt Guð faðir okkar. 7 erum við ekki framar þrælar, heldur börn Guðs! Fyrst við erum börn hans, þá erum við um leið erfingjar öllum eigum hans, og það var einmitt áform Guðs.

8 Áður en þið kynntust Guði, voruð þið heiðingjar. Þið voruð þrælar svokallaðra guða sem voru ekki einu sinni til. 9 En fyrst svo var, hvers vegna viljið þið, sem funduð Guð (eða ætti ég heldur segja Guð hafi fundið ykkur?), þá snúa við og verða aftur þrælar máttvana og einskis nýtra trúarbragða og komast til himins fyrir hlýðni við lög Guðs? 10 Þið eruð reyna hylli Guðs með verkum ykkar eða því sem þið látið ógert tiltekna daga eða mánuði. 11 Ég óttast um ykkur. Ég óttast allt erfiðið sem ég lagði á mig ykkar vegna, hafi verið til einskis.

Vonbrigði Páls

12 Kæru vinir, lítið á málið frá minni hlið. Ég er jafn laus við þessa lagaáþján og þið voruð. Ekki sýnduð þið mér fyrirlitningu þegar ég flutti ykkur gleðiboðskapinn um Krist í fyrsta sinn, 13 og það þrátt fyrir ég væri sjúkur. 14 Veikindi mín hefðu getað vakið viðbjóð ykkar, en samt sneruð þið ekki við mér bakinu senduð mig burt. Nei! Þið tókuð við mér og önnuðust mig eins og engil frá Guði eða þá sjálfan Jesú Krist. 15 Hvað varð um þann góða anda sem þá ríkti milli okkar? Ég er viss um þið hefðuð þá verið fúsir taka úr ykkur augun og gefa mér, í stað minna, ef einhver hjálp hefði verið í því.

16 Er ég orðinn óvinur ykkar vegna þess eins ég segi ykkur sannleikann?

17 Þessir falskennendur sem leggja ofurkapp á ykkur á sitt band, eru ekki því ykkur til góðs, heldur til komast upp á milli ykkar og mín, svo þið takið frekar mark á þeim. 18 Það er gott og blessað fólk sýni ykkur vinsemd, ef það er gert af góðum hug og einlægu hjarta og ekki bara til sýnast fyrir mér. 19 Þið hafið sært mig, börnin mín! Ykkar vegna er ég enn taka út þjáningar móðurinnar sem bíður þess barn hennar fæðist og mikið þrái ég þá stund er þið lokum verðið lík Kristi. 20 Ó, hve ég vildi geta verið hjá ykkur núna, einmitt núna, og þurfa ekki vera rökræða svona við ykkur. er langt á milli okkar og ég veit alls ekki hvað ég á til bragðs taka.

21 Hlustið vinir mínir, þið sem álítið þið þurfið hlýða lögum Gyðinga til frelsast. Hvers vegna reynið þið ekki skilja tilgang laganna? 22 Í Biblíunni segir Abraham hafi átt tvo syni, annan með Hagar, en hún var ambátt, og hinn með Söru, frjálsborinni konu sinni. 23 Það var ekkert óvenjulegt við fæðingu barnsins sem Hagar eignaðist, en barn frjálsu konunnar fæddist samkvæmt sérstöku loforði sem Guð hafði gefið. 24,25 Þessi frásaga sýnir ljóslega þær tvær leiðir sem Guð fer til hjálpa fólki. Önnur var gefa því lög til fara eftir. Það gerði hann á Sínaífjalli þegar hann gaf Móse boðorðin tíu. Sínaífjall er reyndar kallað Hagarfjall af Aröbum. Í myndinni sem ég er draga upp, táknar Hagar, hin þrælborna kona Abrahams, Jerúsalem, höfuðborg Gyðinga, en hún er miðstöð þeirra kenninga sem segja við getum þóknast Guði með því hlýða boðorðunum. Og Gyðingarnir, sem aðhyllast þessa skoðun, eru börn hennar fædd í þrældómi. 26 Okkar höfuðborg er hins vegar hin himneska Jerúsalem og borg er ekki þrælkuð af lögum Gyðinga.

27 Þessu spáði Jesaja er hann sagði: Gleðstu , barnlausa kona! Hrópaðu af gleði, þú sem engar hefur hríðirnar haft, því börn hinnar yfirgefnu eru fleiri en þeirrar sem manninn á."

28 Kæru vinir, það sama gildir um okkur og Ísak, við erum börnin sem Guð gaf loforð um fæðast myndu. 29 Ísak, barn fyrirheitisins, var ofsóttur af Ísmael, syni þrælbornu konunnar, og á sama hátt erum við, sem fædd erum af heilögum anda, ofsótt af þeim sem vilja við höldum lög Gyðinga. 30 Biblían segir enn fremur Guð hafi fyrirskipað Abraham senda ambáttina burt ásamt syni hennar, því ekki gat sonur hennar erft eigur Abrahams ásamt syni frjálsu konunnar. 31 Kæru vinir, við erum ekki þrælabörn og því ekki skyldug hlýða lögum Gyðinga. Við erum börn frjálsu konunnar og vegna trúarinnar erum við velþóknanleg í augum Guðs.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-