4 En þegar rétti tíminn kom, sem Guð hafði ákveðið, þá sendi hann son sinn. Hann fæddist af konu sem Gyðingur og varð að lúta öllum lögum Gyðinga, 5 til að kaupa okkur frelsi, okkur sem voru þrælar laganna, svo að hann gæti ættleitt okkur – gert okkur að börnum sínum. 6 Og fyrst við erum börn hans, þá sendi hann anda sonar síns í hjörtu okkar og því getum við nú með sanni sagt að Guð sé faðir okkar. 7 Nú erum við ekki framar þrælar, heldur börn Guðs! Fyrst við erum börn hans, þá erum við um leið erfingjar að öllum eigum hans, og það var einmitt áform Guðs.