Kristur hefur frelsað okkur
1 Kristur frelsaði okkur til þess að við skyldum lifa í frelsi. Verið því staðföst og látið ekki aftur leggja á ykkur þrældómsfjötra, sem binda ykkur föst við lög og siðvenjur Gyðinga.
13 Kæru vinir, þið hafið öðlast frelsi – ekki til að gera það sem rangt er, heldur til að elska og þjóna hvert öðru.
Hlýðið heilögum anda
16 Ég hvet ykkur til að hlýða aðeins því sem heilagur andi segir ykkur. Hann mun segja ykkur hvert þið eigið að fara og hvað þið eigið að gera, og þá munuð þið ekki lengur hlýðnast sjálfselskunni.
22 Ef hins vegar heilagur andi stjórnar lífi okkar, þá skapar hann eftirfarandi ávexti í okkur: Kærleika, gleði, frið, þolinmæði, gæsku, góðvild, trúmennsku, 23 hógværð, sjálfsstjórn og bindindi, – ekkert af þessu er í andstöðu við lög Gyðinga.