Pular para o conteúdo
Publicidade

Galatabréfið 5:1-6

Kristur hefur frelsað okkur

1 Kristur frelsaði okkur til þess að við skyldum lifa í frelsi. Verið því staðföst og látið ekki aftur leggja á ykkur þrældómsfjötra, sem binda ykkur föst við lög og siðvenjur Gyðinga. 2 Takið eftir, því þetta er mikilvægt: Ef þið ætlið að verða réttlát í augum Guðs með því að láta umskerast og hlýða lögum Gyðinga, þá getur Kristur ekki frelsað ykkur. 3 Ég endurtek: Hver sá sem reynir að þóknast Guði með því að láta umskerast, verður upp frá því að hlýða öllum lögum Gyðinga eða glatast ella. 4 Kristur er ykkur gagnslaus, ef þið haldið að þið getið greitt skuld ykkar við Guð með því að halda þessi lög – og þar með hafið þið misst af náð Guðs.

5 En með hjálp heilags anda, trúum við því hins vegar að Kristur hafi dáið til að hreinsa burt syndir okkar og að hann komi öllu í lag milli okkar og Guðs. 6 Við, sem höfum eignast eilíft líf hjá Kristi, þurfum hvorki að hafa áhyggjur af því hvort við séum umskorin eða ekki, né hvort við förum eftir siðum Gyðinga eða ekki – allt sem við þörfnumst er trú sem starfar í kærleika.

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.