2 Takið eftir, því þetta er mikilvægt: Ef þið ætlið að verða réttlát í augum Guðs með því að láta umskerast og hlýða lögum Gyðinga, þá getur Kristur ekki frelsað ykkur. 3 Ég endurtek: Hver sá sem reynir að þóknast Guði með því að láta umskerast, verður upp frá því að hlýða öllum lögum Gyðinga eða glatast ella. 4 Kristur er ykkur gagnslaus, ef þið haldið að þið getið greitt skuld ykkar við Guð með því að halda þessi lög – og þar með hafið þið misst af náð Guðs.
Publicidade