Pular para o conteúdo
Publicidade

Galatabréfið 6:1-5

1 Kæru trúsystkin, ef kristinn maður fellur fyrir einhverri synd, þá ber ykkur sem guðrækin eruð, að leiða hann aftur á réttan veg og það með hógværð og auðmýkt. Minnist þess jafnframt að næst gæti eitthvert ykkar orðið fyrir hinu sama. 2 Takist á við vandamál og erfiðleika hvers annars og hlýðið þannig boði Drottins. 3 Finnist einhverjum hann of mikill maður til að auðmýkja sig á þennan hátt, þá blekkir hann sjálfan sig, því að sjálfur er hann ekkert. 4 Hver um sig gæti þess að gera sitt besta og þá getur hann glaðst hið innra yfir vel unnu verki og þarf ekki að bera sig saman við aðra. 5 Hver og einn verður að berjast við eigin veikleika og vandamál, því að ekkert okkar er fullkomið.

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.