Publicidade

Gálatas 6

1 Kæru trúsystkin, ef kristinn maður fellur fyrir einhverri synd, þá ber ykkur sem guðrækin eruð, leiða hann aftur á réttan veg og það með hógværð og auðmýkt. Minnist þess jafnframt næst gæti eitthvert ykkar orðið fyrir hinu sama. 2 Takist á við vandamál og erfiðleika hvers annars og hlýðið þannig boði Drottins. 3 Finnist einhverjum hann of mikill maður til auðmýkja sig á þennan hátt, þá blekkir hann sjálfan sig, því sjálfur er hann ekkert. 4 Hver um sig gæti þess gera sitt besta og þá getur hann glaðst hið innra yfir vel unnu verki og þarf ekki bera sig saman við aðra. 5 Hver og einn verður berjast við eigin veikleika og vandamál, því ekkert okkar er fullkomið.

6 Þeim sem fræðslu njóta í guðsorði, ber veita kennurum sínum fjárhagslegan stuðning.

Missið ekki kjarkinn

7 Forðist alla sýndarmennsku fyrir Guði, því þið munuð uppskera eins og þið sáið. 8 sem vill fullnægja sínum illu hvötum, sáir illgresi í hjarta sitt og uppsker andlega niðurlægingu og dauða. Ef hann hins vegar sáir hinu góða sæði Guðs anda, þá uppsker hann eilíft líf sem andinn gefur honum. 9 Þreytumst ekki á gera hið góða, því á sínum tíma munum við uppskera blessun, ef við gefumst ekki upp. 10 Notum því hvert tækifæri til sýna öðrum vináttu og þá sérstaklega trúsystkinum okkar.

11 Niðurlag bréfsins ætla ég skrifa með eigin hendi. Sjáið hvað ég skrifa stóra stafi! 12 Þessir fræðarar ykkar, sem leggja hart ykkur láta umskerast, hafa aðeins eitt í huga. Þeir vilja vinsældum, svo þeir komist hjá ofsóknunum sem þeir annars ættu í vændum, ef þeir segðu verk Krists á krossinum nægði til hjálpræðis. 13 Þessir menn, sem fylgja umskurninni, reyna ekki einu sinni halda lög Gyðinga öðru leyti. Þeir vilja þið látið umskerast, svo þeir geti stært sig af ykkur sem sínum lærisveinum.

14 Guð forði mér frá því hrósa mér af nokkru öðru en krossi Drottins Jesú Krists. Langt er síðan kross þessi deyddi alla löngun mína í lystisemdir heimsins og áhugi heimsins á mér er einnig löngu horfinn. 15 Það skiptir ekki lengur máli hvort við erum umskornir eða ekki. Það sem máli skiptir er hvort við erum orðin sköpun nýjar manneskjur.

16 Miskunn og friður Guðs með ykkur öllum sem lifið eftir reglu þessari, öllum þeim sem Guði tilheyra, hvar sem þeir eru. 17 Ég bið ykkur mæða mig ekki framar með þessum deilum, því líkami minn ber ör eftir svipuhögg og sár, sem óvinir Jesú hafa veitt mér.

18 Kæru vinir, náð Drottins Jesú Krists með ykkur öllum. Amen.

Páll.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-