Guð hefur talað
1 Fyrr á tímum talaði Guð með ýmsu móti til forfeðra okkar fyrir milligöngu spámannanna (til dæmis í sýnum, draumum eða jafnvel augliti til auglitis) og sagði þeim þannig smátt og smátt frá fyrirætlunum sínum.
2 Á okkar dögum hefur hann hins vegar talað til okkar með tungu sonar síns, sem hann hefur gefið alla hluti. Sonarins vegna skapaði hann heiminn og allt sem í honum er.
3 Sonur Guðs endurspeglar dýrð Guðs og allt, sem sonurinn er og gerir, ber þess vitni að hann er Guð. Hann ríkir yfir alheimi með orðum sínum. Hann er sá sem dó til að hreinsa okkur og sýkna af ákæru syndarinnar og settist síðan í hið æðsta heiðurssæti við hlið Guðs almáttugs á himnum.