3 Sonur Guðs endurspeglar dýrð Guðs og allt, sem sonurinn er og gerir, ber þess vitni að hann er Guð. Hann ríkir yfir alheimi með orðum sínum. Hann er sá sem dó til að hreinsa okkur og sýkna af ákæru syndarinnar og settist síðan í hið æðsta heiðurssæti við hlið Guðs almáttugs á himnum.
4 Þannig varð hann englunum mun æðri og það sannar líka nafnið sem faðir hans gaf honum: „Sonur Guðs", en það nafn er langtum æðra en nöfn og titlar englanna.