23 Nú getum við með öruggri vissu horft fram til þess sem Guð hefur heitið okkur. Ekki er lengur rúm fyrir efann. Nú getum við óhikað sagt að við eigum hjálpræðið, og það samkvæmt orði Guðs.
Einbeitið ykkur að því að gera hið góða
24 Gætum hvert að öðru og hvetjum hvert annað til að sýna hjálpsemi og að gera öðrum gott.
25 Vanrækjum ekki söfnuð okkar eins og sumir gera, heldur hvetjum og áminnum hvert annað, sérstaklega nú er endurkoma Jesú nálgast.