3 En það var öðru nær. Í stað þess að létta á samvisku manna, minnti þessi árlega fórn þá á óhlýðni þeirra og sekt. 4 Það er útilokað að blóð nauta og geita geti hreinsað burt syndir nokkurs manns.
5 Þetta er ástæða þess, sem Kristur sagði þegar hann kom í heiminn: „Guð, þú lætur þér ekki nægja blóð nauta og geita, og því hefur þú gefið mér þennan líkama, til þess að ég leggi hann sem fórn á altari þitt. 6 Þú gerðir þig ekki ánægðan með dýrafórnir – að dýrum væri slátrað og þau síðan brennd frammi fyrir þér sem syndafórn. 7 Sjá, ég er kominn til að hlýða vilja þínum, til að fórna lífi mínu, eins og spádómar Biblíunnar sögðu fyrir um."
8 Fyrst sagði Kristur að Guð gerði sér ekki að góðu hinar ýmsu fórnir og gjafir, sem krafist var samkvæmt lögmálinu. 9 Síðan bætti hann við: „Hér er ég. Ég er kominn til að fórna lífi mínu."
Þá afnam hann gamla kerfið og innleiddi þess í stað annað miklu betra. 10 Samkvæmt þessari nýju hjálpræðisleið fáum við fyrirgefningu og hreinsun í eitt skipti fyrir öll, vegna þess að Kristur dó fyrir okkur.