32 Gleymið ekki þeim dýrlega tíma er þið fyrst heyrðuð um Krist. Munið hversu fast þið hélduð ykkur að Drottni, þrátt fyrir erfiðleikana sem ykkur mættu, 33 og þótt hlegið væri að ykkur eða þið barin. Þið studduð aðra, sem urðu fyrir sama aðkasti, 34 og þjáðust með þeim sem varpað var í fangelsi. Og jafnvel þótt allt, sem þið ættuð, væri tekið frá ykkur, hélduð þið samt gleði ykkar, því að þið vissuð að á himnum ættuð þið í vændum það sem betra var, nokkuð sem enginn gæti nokkru sinni tekið frá ykkur.
Publicidade