17 Guð reyndi trú Abrahams og hún stóðst. Abraham treysti Guði og loforðum hans. Guð bauð honum að fórna Ísak, syni sínum. Hann hlýddi, 18 og var alveg að því kominn að lífláta Ísak, sem Guð hafði þó lofað að yrði forfaðir heillar þjóðar. 19 Abraham trúði því að ef Ísak dæi, þá mundi Guð reisa hann upp frá dauðum. Það má segja að Ísak hafi verið dauðans matur frá sjónarmiði Abrahams, en þó var lífi hans bjargað.