1 Virðum nú fyrir okkur þessar trúarhetjur og látum þær verða okkur til hvatningar. Losum okkur við allt, sem hindrar okkur og fjötrar. Þá á ég sérstaklega við syndir, sem vafist hafa um fætur okkar og hindrað okkur í að ganga áfram veg trúarinnar. Hlaupum þolgóð skeiðið, sem Guð hefur ætlað okkur.
2 Horfum stöðugt á Jesú, höfund og leiðtoga trúar okkar. Hann var fús að deyja smánardauða á krossi, vegna gleðinnar, sem hann vissi að biði hans, og nú situr hann í heiðurssæti við hástól Guðs. 3 Ef þið viljið komast hjá því að missa kjarkinn og gefast upp, minnist þá þolinmæði hans er hann þjáðist af völdum syndugra manna.