Pular para o conteúdo
Publicidade

Hebreabréfið 12

Refsing Guðs verður okkur til góðs

5 Hafið þið alveg gleymt þessum hvatningarorðum sem Guð sagði við ykkur, börnin sín: Sonur minn, reiðstu ekki þótt Drottinn refsi þér. Misstu ekki kjarkinn, þótt hann bendi þér á mistök þín, 6 því refsing hans sannar hann elskar þig. Ef hann hirtir þig, þá sýnir það aðeins þú ert í raun og veru barn hans."

7 Leyfðu Guði aga þig, því það gera allir feður sem elska börnin sín. Hafið þið nokkru sinni heyrt talað um son sem aldrei hlaut umvöndun? 8 Ef Guð lætur hjá líða refsa ykkur, þegar þið eigið það skilið eins og feður almennt refsa börnum sínum þá er það merki þess þið séuð alls ekki hans börn og tilheyrið þar af leiðandi ekki fjölskyldu hans. 9 Við virðum okkar jarðnesku feður, enda þótt þeir refsi okkur, ættum við þá ekki enn frekar taka ögun Guðs, svo við lærum lifa lífinu á réttan hátt? 10 Okkar jarðnesku feður öguðu okkur aðeins í nokkur ár og aðeins í góðum tilgangi. Ögun Guðs er alltaf rétt og okkur fyrir bestu, því hún veitir okkur hlutdeild í heilagleika hans. 11 Refsing er óþægileg meðan á henni stendur, og jafnvel sársaukafull! En hver er árangurinn? Persónuleiki og skilningur mannsins vex og þroskast.

Veja também