7 Leyfðu Guði að aga þig, því að það gera allir feður sem elska börnin sín. Hafið þið nokkru sinni heyrt talað um son sem aldrei hlaut umvöndun? 8 Ef Guð lætur hjá líða að refsa ykkur, þegar þið eigið það skilið – eins og feður almennt refsa börnum sínum – þá er það merki þess að þið séuð alls ekki hans börn og tilheyrið þar af leiðandi ekki fjölskyldu hans.