7 Leyfðu Guði að aga þig, því að það gera allir feður sem elska börnin sín. Hafið þið nokkru sinni heyrt talað um son sem aldrei hlaut umvöndun? 8 Ef Guð lætur hjá líða að refsa ykkur, þegar þið eigið það skilið – eins og feður almennt refsa börnum sínum – þá er það merki þess að þið séuð alls ekki hans börn og tilheyrið þar af leiðandi ekki fjölskyldu hans. 9 Við virðum okkar jarðnesku feður, enda þótt þeir refsi okkur, ættum við þá ekki enn frekar að taka ögun Guðs, svo við lærum að lifa lífinu á réttan hátt? 10 Okkar jarðnesku feður öguðu okkur aðeins í nokkur ár og aðeins í góðum tilgangi. Ögun Guðs er alltaf rétt og okkur fyrir bestu, því að hún veitir okkur hlutdeild í heilagleika hans.