Publicidade

Hebreus 13

Hvatningarorð og kveðjur

1 Haldið áfram elska hvert annað með fórnfúsum kærleika. 2 Gleymið ekki gestrisninni því sumir hafa, óafvitandi, tekið á móti englum. 3 Gleymið ekki föngunum, heldur takið þátt í þjáningum þeirra eins og þið sjálf væruð í þeirra sporum. Samhryggist þeim sem illt þola, því sjálf hafið þið líkama. 4 Hjónabandið í heiðri haft og öll þau heit sem því fylgja. Lifið siðferðislega hreinu lífi, því Guð mun sannarlega refsa öllum sem lifa í siðleysi og drýgja hór.

5 Varist alla ágirnd og látið ykkur nægja það sem þið hafið. Guð hefur sagt: Ég mun aldrei, aldrei bregðast þér yfirgefa þig." 6 Við getum því sagt, óttalaust og án efasemda: Drottinn hjálpar mér og því óttast ég hvorki mennina verk þeirra."

7 Minnist leiðtoga ykkar, sem hafa frætt ykkur um orð Guðs. Hugsið um allt hið góða, sem þeir komu til leiðar, og reynið treysta Drottni á sama hátt og þeir.

8 Jesús Kristur er hinn sami í gær og í dag og eilífu. 9 Látið því engar nýjar og framandi kenningar hafa áhrif á ykkur. Styrkur ykkar kemur frá Guði, en ekki vissum reglum um mataræði leið hefur reynst gagnslaus þeim er hana fóru. 10 Við höfum okkar altari kross Krists en það kemur þeim ekki gagni, sem reyna frelsast með hlýðni við lög Gyðinga. 11 Samkvæmt lögum Gyðinga, bar æðsti presturinn blóðið úr fórnardýrunum inn í helgidóminn hið allra helgasta sem syndafórn, og síðan voru hræin af þeim brennd fyrir utan borgina. 12 Þetta skýrir hvers vegna Jesús þjáðist og fyrir utan borgina. Þar afmáði hann syndir okkar með blóði sínu.

13 Göngum því út til hans, út fyrir borgina (það er segja snúum baki við því sem heimurinn hefur mætur á og verum reiðubúin þola fyrirlitningu) til þjást þar með honum og bera smán hans. 14 Við erum aðeins gestir á þessari jörð, sem horfa fram á veginn til himins, því þar munum við eiga heima eilífu. 15 Með hjálp Jesú munum við enn bera lofgjörðarfórn fram fyrir Guð, með því játa nafn hans meðal fólksins. 16 Gleymið ekki gera öðrum gott og deila eigum ykkar með þeim sem þurfandi eru, slíkar fórnir eru Guði mjög skapi.

17 Hlýðið ykkar andlegu leiðtogum með glöðu geði. Hlutverk þeirra er vaka yfir sálum ykkar og Guð mun dæma þá eftir gerðum þeirra. Stuðlið því þeir geti minnst ykkar með gleði frammi fyrir Drottni, en ekki með hryggð, því það yrði ykkur til ógagns. 18 Biðjið fyrir okkur við höfum góða samvisku og breytum vel í öllum hlutum. 19 Ég þarfnast fyrirbæna ykkar á sérstakan hátt, einmitt , til þess ég geti komist til ykkar sem fyrst.

20,21 Guð friðarins, sem vakti Drottin Jesú upp frá dauðum, annist allar þarfir ykkar, svo þið getið gert vilja hans. Ég bið hann, hinn mikla hirði sauðanna, sem undirritaði eilífan sáttmála milli ykkar og Guðs með blóði sínu, hann fullkomni ykkur í öllu góðu fyrir kraft Krists, svo þið gerið hans vilja og séuð honum þóknanleg. Honum dýrðin eilífu. Amen.

22 Vinir, ég bið ykkur lokum fara eftir því sem ég hef sagt í þessu bréfi. Það er ekki langt og ætti því vera fljótlesið. 23 Ég vil gjarnan þið vitið bróðir Tímóteus er laus úr fangelsinu. Ef hann kemur hingað bráðlega, munum við verða samferða til ykkar. 24,25 Skilið kveðjum frá mér til leiðtoga ykkar og annarra trúaðra. Mennirnir frá Ítalíu, sem hér eru ásamt mér, senda ykkur kærar kveðjur. Náð Guðs með ykkur öllum. Amen.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-