10 Það var rétt af Guði, sem skapað hefur alla hluti sér til dýrðar, að láta Jesú þjást, því að á þann hátt fékk hann leitt mikinn fjölda af fólki sínu til himna – þá sem honum treysta. Vegna þjáninganna varð Jesús fullkominn leiðtogi, fær um að leiða fólkið til hjálpræðis.
11 Nú eigum við, sem Jesús hefur helgað, sama föður og hann og því blygðast Jesús sín ekki heldur fyrir að kalla okkur bræður og systur.