4 Þeir eru margir sem byggt geta hús, en aðeins einn, sem allt hefur skapað, og það er Guð.
5 Satt er það að Móse kom miklu góðu til leiðar, þann tíma sem hann starfaði í húsi Guðs, en hann var aðeins þjónn. Starf hans var einkum að gefa hugmynd um og lýsa því, sem síðar yrði. 6 Kristur, sonur Guðs, ber hins vegar ábyrgð á öllu húsi Guðs. Við kristnir menn erum bústaður Guðs og Guð býr í okkur, ef við varðveitum djörfung okkar, gleði og trúna á Drottin allt til enda.