12 Guðs orð er lifandi og máttugt. Það er beittara en tvíeggjað sverð og smýgur á augabragði inn í innstu fylgsni hugans og sýnir okkur hvernig við erum í raun og veru. 13 Guð veit allt um alla. Í augum hans erum við sem opin bók – ekkert fær dulist fyrir honum og dag einn verðum við að gera honum fulla grein fyrir öllu, sem við höfum aðhafst.