9 Hér er því um að ræða fullkomna hvíld, sem enn stendur fólki Guðs til boða. 10 Kristur hefur þegar gengið þangað inn og nú hvílist hann að loknu verki sínu eins og Guð gerði eftir sköpunina. 11 Keppum nú að því að ná þessum hvíldarstað og gætum þess að óhlýðnast ekki Guði eins og Ísraelsþjóðin gerði, því að það kom í veg fyrir að hún kæmist þangað inn.