12,13 Nú hafið þið verið kristin í langan tíma og ættuð þar af leiðandi að geta kennt öðrum. Þess í stað hefur ykkur farið aftur, svo að nú þurfið þið á kennara að halda, til þess að rifja upp með ykkur undirstöðuatriði Guðs orðs. Þið eruð eins og börn, sem aðeins geta drukkið mjólk en þola ekki venjulegan mat. Sá sem heldur áfram að lifa á „mjólk" sýnir þar með að hann er stutt kominn á vegi trúarinnar og þekkir illa muninn á réttu og röngu. Slíkur maður er ungbarn í trúnni.
Publicidade