11 Kristur kom sem æðsti prestur nýs og betri sáttmála og þann sáttmála höfum við nú. Hann gekk inn í hina miklu og fullkomnu tjaldbúð himnanna, sem hvorki er gerð af manna höndum né úr jarðnesku efni. 12 Hann fór með blóð inn í hið allra helgasta, í eitt skipti fyrir öll, og stökkti því á náðarstólinn. Blóð þetta var ekki blóð úr geitum eða kálfum, heldur hans eigið blóð og með því tryggði hann okkur eilíft hjálpræði.