16 Þegar maður deyr og skilur eftir sig erfðaskrá, þá fær enginn neitt af arfinum fyrr en sannast hefur að sá, er gerði erfðaskrána, sé dáinn. 17 Erfðaskráin gengur ekki í gildi fyrr en sá er látinn, sem hana gerði, og meðan hann er á lífi, getur enginn notfært sér hana til að komast yfir þær eignir sem honum eru ánafnaðar.
18 Þetta skýrir hvers vegna blóði fórnardýranna var úthellt (en það bendir einmitt fram til dauða Krists) og það meira að segja áður en fyrri sáttmálinn tók gildi. 19 Eftir að Móse hafði afhent fólkinu lögbók Guðs, tók hann blóð kálfa og geita ásamt vatni og stökkti því með ísópsgrein og skarlatsrauðri ull yfir sjálfa bókina og allt fólkið. 20 Síðan sagði hann: „Blóð þetta er tákn þess að sáttmálinn milli ykkar og Guðs hefur tekið gildi, en þennan sáttmála bauð Guð mér að gera milli ykkar og sín."