Ljós í myrkrinu
1 Í upphafi, áður en nokkuð varð til, var Kristur hjá Guði. 2 Hann hefur verið frá upphafi og sjálfur er hann Guð. 3 Allt var skapað vegna hans og án hans varð ekkert til sem til er orðið. 4 Í honum er eilíft líf, og þetta líf er ljós fyrir alla menn. 5 Líf hans er ljósið sem skín í myrkrinu en myrkrið vill ekkert með það hafa.
6,7 Guð sendi Jóhannes skírara til að vitna um að Jesús Kristur væri hið sanna ljós. 8 Ekki var Jóhannes ljósið, heldur átti hann að vitna um það. 9 Seinna kom sá sem er hið sanna ljós, og hann vill lýsa upp líf sérhvers manns sem fæðist í þennan heim.
10 Hann var í heiminum og heimurinn varð til hans vegna, en samt þekkti heimurinn hann ekki. 11,12 Honum var jafnvel hafnað í sínu eigin landi og af eigin þjóð – Gyðingum. Fáir tóku við honum, en öllum þeim sem það gerðu gaf hann rétt og kraft til að verða Guðs börn – þeim sem treystu því að hann gæti frelsað þá. 13 Þeir, sem þannig trúa á hann, endurfæðast! Það er ekki líkamleg endurfæðing – afleiðing mannlegra hvata eða áforma – heldur andleg fæðing og samkvæmt vilja Guðs.
14 Kristur fæddist sem maður og bjó hér á jörðinni meðal okkar, fullur náðar og sannleika. Við sáum dýrð hans – dýrð eingetins sonar hins himneska föður.
Jóhannes bendir á Jesú
15 Jóhannes benti fólkinu á hann og sagði: „Sá mun koma sem mér er æðri og var löngu á undan mér." 16 Öll höfum við notið miskunnar hans og kærleika, náðar á náð ofan. 17 Móse flutti okkur lögmálið með öllum þess ströngu kröfum og afdráttarlausa réttlæti, en náðin og sannleikurinn kom með Jesú Kristi. 18 Enginn hefur nokkurn tíma séð Guð en einkasonur hans, sem stendur næst föðurnum, hefur kennt okkur að þekkja hann.