11,12 Honum var jafnvel hafnað í sínu eigin landi og af eigin þjóð – Gyðingum. Fáir tóku við honum, en öllum þeim sem það gerðu gaf hann rétt og kraft til að verða Guðs börn – þeim sem treystu því að hann gæti frelsað þá. 13 Þeir, sem þannig trúa á hann, endurfæðast! Það er ekki líkamleg endurfæðing – afleiðing mannlegra hvata eða áforma – heldur andleg fæðing og samkvæmt vilja Guðs.
Publicidade