45 Filippus fór að finna Natanael og sagði við hann: „Við höfum fundið Krist – þann sem Móse og spámennirnir töluðu um! Hann heitir Jesús Jósefsson og er frá Nasaret."
46 „Nasaret!" hrópaði Natanael. „Getur nokkuð gott komið þaðan?"
„Komdu og sjáðu sjálfur," svaraði Filippus ákveðinn.