Publicidade

João 10

Ég er góði hirðirinn

1 sem ekki vill ganga inn um dyrnar til komast inn í sauðabyrgið, heldur klifrar yfir vegginn, hlýtur vera þjófur. 2 Hirðirinn kemur alltaf inn um dyrnar. 3 Dyravörðurinn opnar fyrir honum og sauðirnir heyra rödd hans og koma til hans. Síðan kallar hann á sauðina með nafni og fer út með þá. 4 Hann gengur á undan þeim og þeir fylgja honum, því þeir þekkja rödd hans. 5 Ókunnugum fylgja þeir ekki, heldur forðast þá, því þeir þekkja ekki rödd þeirra."

6 Þeir sem heyrðu Jesú segja þessa dæmisögu skildu hana ekki, 7 og því útskýrði hann hana fyrir þeim:

Ég er dyr sauðanna," sagði hann. 8 Allir sem komu á undan mér voru þjófar og ræningjar og sauðirnir hlýddu þeim ekki. 9 Ég er dyrnar. Þeir sem koma inn um mig munu frelsast, ganga inn og út og gott fóður. 10 Þjófurinn ætlar sér stela; drepa og eyðileggja, en ég kom til veita líf og nægtir.

11 Ég er góði hirðirinn. Góði hirðirinn leggur líf sitt í sölurnar fyrir sauðina. 12 Þegar leiguliðinn sér úlfinn koma, þá flýr hann og yfirgefur sauðina, því hann á þá ekki. Og úlfurinn ræðst á hjörðina og hún tvístrast. 13 Þá flýr leiguliðinn, því hann hugsar aðeins um launin, en honum er ekki annt um hjörðina.

14 Ég er góði hirðirinn og þekki mína og þeir þekkja mig, 15 rétt eins og faðirinn þekkir mig og ég föðurinn. Ég fórna lífi mínu fyrir sauðina. 16 Ég á líka aðra sauði í annarri rétt. Ég verð einnig leiða þá og þeir munu hlýða rödd minni, það verður ein hjörð og einn hirðir.

17 Faðirinn elskar mig vegna þess ég legg líf mitt í sölurnar til þess síðan það aftur. 18 Enginn getur tekið líf mitt án míns samþykkis ég legg það sjálfviljuglega í sölurnar. Ég hef vald til gefa það þegar ég vil og ég hef einnig vald til taka það aftur. Þennan rétt hefur faðir minn gefið mér." 19 Við þessi orð Jesú urðu leiðtogar Gyðinganna enn einu sinni ósammála í skoðunum sínum um hann. 20 Sumir þeirra sögðu: Annað hvort hefur hann illan anda eða er brjálaður. Hvað þýðir hlusta á slíkan mann?" 21 Aðrir sögðu: Okkur virðist hann ekki hafa illan anda. Getur illur andi opnað augu blindra?"

Segðu það hreinskilnislega"

22,23 var vetur og Jesús var í Jerúsalem á vígsluhátíðinni. Hann var á gangi í súlnagöngum Salómons í musterinu. 24 Þá umkringdu leiðtogar þjóðarinnar hann og spurðu: Hversu lengi ætlar þú halda okkur í óvissu? Ef þú ert Kristur, segðu okkur það þá hreinskilnislega." 25 Ég hef þegar sagt ykkur það," svaraði Jesús, en þið trúið mér ekki. Kraftaverkin, sem ég geri í nafni föður míns, bera mér vitni. 26 Þið trúið mér ekki af því þið tilheyrið ekki minni hjörð. 27 Mínir sauðir þekkja mína rödd og ég þekki þá og þeir fylgja mér. 28 Ég gef þeim eilíft líf og þeir munu aldrei eilífu glatast. Enginn skal slíta þá úr hendi minni, 29 því faðir minn, sem hefur gefið mér þá, er máttugri en nokkur annar. Enginn skal ræna þeim frá mér. 30 Ég og faðirinn erum eitt." 31 Þegar leiðtogarnir heyrðu þetta tóku þeir enn einu sinni upp steina til grýta hann. 32 Þá sagði Jesús: Mörg góðverk sýndi ég ykkur frá Guði, fyrir hvert þeirra grýtið þið mig ?" 33 Við grýtum þig ekki fyrir góðverk, heldur guðlast," svöruðu þeir. Þú, sem ert bara venjulegur maður, segist vera Guð!" 34-36 Stendur ekki í lögmálinu menn séu guðir?" svaraði Jesús. Fyrst Biblían, sem ekki getur farið með ósannindi, segir þeir sem fengu boðskap frá Guði séu guðir í augum manna, hvernig getið þið þá kallað það guðlast þegar sem faðirinn helgaði og sendi í heiminn, segir: Ég er sonur Guðs?" 37 Þið trúið mér ekki nema ég geri guðdómleg kraftaverk, 38 en reynið þá trúa þeim, þótt þið trúið mér ekki, og sannfærist um faðirinn í mér og ég í föðurnum." 39 Þegar þeir heyrðu þetta reyndu þeir aftur handtaka hann en misstu af honum. 40,41 Jesús fór austur yfir Jórdan, til staðarins þar sem Jóhannes skírði fyrst. Þar dvaldist hann og margir komu til hans. Jóhannes gerði vísu engin kraftaverk," sagði fólkið sín á milli, en allir spádómar hans um þennan mann hafa ræst." 42 Þarna gerðust margir trúaðir á Jesús væri Kristur.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-