Pular para o conteúdo
Publicidade

João 11

Lasarus deyr

1 Maður nokkur hét Lasarus og bjó í Betaníu ásamt systrum sínum, Maríu og Mörtu. 2 María var sem eitt sinn hellti dýrri ilmolíu yfir fætur Jesú og þurrkaði þá með hári sínu. 3 Systurnar Marta og María sendu svohljóðandi boð til Jesú: Herra, sem þú elskar, Lasarus, er hættulega veikur."

4 Þegar Jesús fékk skilaboðin, sagði hann: Þessi veikindi munu ekki enda með dauða, heldur er þeim ætlað verða Guði til dýrðar og vegsama mig, son Guðs."

5 Jesú þótti mjög vænt um Mörtu, Maríu og Lasarus, 6 en dvaldist þó enn í tvo daga þar sem hann var og sýndi ekki á sér fararsnið. 7 Loks, þeim tíma liðnum, sagði hann við lærisveina sína: Við skulum fara til Júdeu."

8 , en meistari!" sögðu lærisveinarnir, það eru aðeins nokkrir dagar síðan leiðtogarnir í Júdeu reyndu drepa þig. Ætlarðu fara þangað aftur?"

9 Það er bjart tólf stundir á dag," svaraði Jesús, og þá getur maður gengið um öruggur án þess hrasa, 10 en á nóttunni er manni hætt við hrasa vegna myrkursins." 11 Síðan bætti hann við og sagði: Lasarus, vinur okkar, er sofnaður, en ætla ég fara og vekja hann!"

12,13 Lærisveinarnir héldu þá Lasarus hefði fengið góðan nætursvefn og sögðu: Það er gott heyra, þá hlýtur honum vera farið batna!" Jesús átti hins vegar við Lasarus væri dáinn.

14 Jesús sagði því við þá berum orðum: Lasarus er dáinn, 15 en það gleður mig ykkar vegna, því þetta mun styrkja ykkur í trúnni. Komið, við skulum fara til hans."

16 Tómas, sem kallaður var tvíburinn", sagði þá við hina lærisveinana: Við skulum fara líka og deyja með honum."

17 Þegar þeir komu til Betaníu var þeim sagt Lasarus væri þegar búinn liggja fjóra daga í gröfinni. 18 Betanía var aðeins um þrjá kílómetra frá Jerúsalem. 19 Margir leiðtogar Gyðinga voru komnir til láta samúð sína í ljós og hugga Mörtu og Maríu. 20 Þegar Mörtu var sagt Jesús væri koma fór hún út til móts við hann, en María var kyrr heima.

21 Marta sagði við Jesú: Herra, ef þú hefðir komið fyrr væri bróðir minn ekki dáinn. 22 Ég veit Guð veitir þér allt sem þú biður hann um."

23 Þá sagði Jesús: Bróðir þinn mun rísa upp."

24 , það mun hann gera eins og allir aðrir á degi upprisunnar," sagði Marta.

25 Ég er sem reisi hina dauðu og gef þeim líf," sagði Jesús. Hver sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi. 26 Og sem eignast lífið í trúnni á mig, mun aldrei eilífu deyja. Marta, trúir þú þessu?"

27 , herra," svaraði hún, ég trúi þú sért Kristur, sonur Guðs, sem koma átti í heiminn."

28 Þegar hún hafði sagt þetta, fór hún og kallaði á systur sína og sagði við hana einslega: Meistarinn er hér og vill finna þig." 29 Þegar María heyrði þetta fór hún þegar í stað út til hans.

Jesús vekur Lasarus upp frá dauðum

30 Jesús hafði staldrað við utan við bæinn, þar sem hann hitti Mörtu fyrst. 31 Þegar mennirnir, sem voru í húsinu reyna hugga Maríu, sáu hana fara út í flýti, álitu þeir hún væri fara út gröf Lasarusar til gráta þar, svo þeir fóru á eftir henni.

32 Þegar María kom þangað sem Jesús var, kraup hún við fætur hans og sagði: Herra, ef þú hefðir verið hér væri bróðir minn enn á lífi."

33 Þegar Jesús hana gráta ásamt mönnunum, varð hann gramur, byrsti sig og spurði: 34 Hvar er hann grafinn?"

Komdu, við skulum sýna þér það," svöruðu þeir. 35 Þá táraðist Jesús.

36 Þeir voru mjög nánir vinir," sögðu Gyðingarnir. Sjáið bara hve honum hefur þótt vænt um hann."

37,38 Aðrir sögðu: Þessi maður læknaði blindan mann af hverju kom hann þá ekki í veg fyrir Lasarus dæi?" Þegar Jesús heyrði þetta varð hann aftur gramur. Þau gengu gröfinni, en hún var hellir og hafði stórum steini verið velt fyrir dyrnar.

39 Veltið steininum frá," sagði Jesús. , en það er komin nálykt af honum," sagði Marta, systir hins látna. Hann hefur legið hér í fjóra daga!"

40 Sagði ég þér ekki: Ef þú trúir, muntu sjá dýrð Guðs?" " spurði Jesús.

41 Síðan var steininum velt frá. Jesús leit upp til himins og sagði: Faðir, ég þakka þér þú hefur heyrt bæn mína. 42 Auðvitað veit ég þú bænheyrir mig í hverju sem er, en ég sagði þetta til þess fólkið, sem hér stendur, trúi þú hafir sent mig." 43 Síðan kallaði hann: Lasarus, komdu út!"

44 Og Lasarus kom! Hann var vafinn líkblæjum og höfuð hans hulið með klút. Takið af honum líkblæjurnar og látið hann fara." sagði Jesús.

Veja também