Mannfjöldinn fagnar Jesú
12,13 Daginn eftir flaug sú frétt um alla borgina að Jesús væri á leiðinni til Jerúsalem. Tóku þá margir hátíðargestanna pálmagreinar sér í hönd, gengu niður veginn á móti honum og hrópuðu: „Frelsarinn! Frelsarinn! Guð blessi konung Ísraels! Dýrð sé Guði!"
14 Jesús hafði ungan asna að reiðskjóta og rættist þar með spádómur er þannig hljóðar: 15 „Óttist ekki, Ísraelsmenn, því að konungur ykkar kemur til ykkar, hógvær og ríðandi á ösnufola!"
16 (Lærisveinar hans skildu ekki að nú var þessi spádómur að rætast. En þegar Jesús var farinn til dýrðar sinnar á himnum, áttuðu þeir sig á hve margir spádómar höfðu ræst fyrir augum þeirra, án þess að þeir veittu því athygli.)
17 Fólkið, sem sá Jesú reisa Lasarus upp frá dauðum, sagði frá þeim atburði, 18 og það varð til þess að margir fóru út til móts við Jesú – fólkið hafði heyrt um þetta stórkostlega kraftaverk. 19 Þá sögðu farísearnir hver við annan: „Við höfum tapað! Sjáið þið: Allur heimurinn eltir hann!"