20 Grikkir nokkrir, sem komnir voru til Jerúsalem á páskahátíðina, 21 heimsóttu Filippus, en hann var frá Betsaída. „Herra," sögðu þeir við hann, „okkur langar að hitta Jesú."
23,24 Jesús svaraði þeim og sagði, að nú væri komið að því að hann sneri aftur til dýrðar sinnar á himnum og bætti síðan við: „Ég verð að falla og deyja líkt og hveitikornið, sem fellur í moldina og deyr. Ef ég dey ekki, þá verð ég einsamall, eins og yfirgefið fræ, en dauði minn mun hins vegar leiða af sér mörg ný „hveitikorn" – ríkulega uppskeru, því margir munu eignast nýtt líf.
32 Ég verð hafinn upp (á krossinum) og mun draga alla til mín." 33 Með þessum orðum gaf hann til kynna hvernig hann myndi deyja.