Pular para o conteúdo
Publicidade

João 14

15,16 Ef þið elskið mig, hlýðið þá orðum mínum. Ég mun biðja föðurinn og hann mun gefa ykkur annan hjálpara, sem aldrei yfirgefur ykkur. 17 Þessi hjálpari er heilagur andi. Andinn sem leiðir menn í allan sannleikann. Heimurinn getur ekki tekið á móti honum, því heimurinn leitar hans ekki og þekkir hann ekki heldur. En þið þekkið hann, því hann lifir í ykkur og er með ykkur. 18 Ég mun ekki sleppa af ykkur hendinni skilja ykkur eina eftir; ég kem til ykkar. 19 Innan skamms yfirgef ég þennan heim en ég verð samt með ykkur, því ég lifi og þið munuð lifa. 20 Þegar ég er risinn upp frá dauðum, munuð þið skilja ég er í föður mínum, þið í mér, og ég í ykkur. 21 sem hlýðir mér, elskar mig og vegna þess hann elskar mig, mun faðir minn elska hann, og ég mun elska hann og sjálfur birtast honum."

22 Júdas (ekki Júdas Ískaríot, heldur nafni hans) sagði þá við hann: Herra, hvers vegna vilt þú einungis opinbera þig fyrir okkur, lærisveinunum, en ekki fyrir heiminum?"

23 Vegna þess ég vil aðeins opinbera mig þeim sem elska mig og hlýða mér," svaraði Jesús. Síðan bætti hann við: Faðirinn mun einnig elska þá og við munum koma til þeirra og búa hjá þeim. 24 sem óhlýðnast mér, sýnir þar með hann elskar mig ekki. Takið eftir, þetta svar við spurningu ykkar er ekki mitt svar, heldur föðurins sem sendi mig. 25 Þetta segi ég ykkur meðan ég er hjá ykkur. 26 En þegar faðirinn sendir ykkur hjálparann í minn stað og þegar ég tala um hjálparann, þá á ég við heilagan anda þá mun hann, andinn, fræða ykkur um margt og minna ykkur á allt sem ég hef sagt ykkur.

Veja também