21 Sá sem hlýðir mér, elskar mig og vegna þess að hann elskar mig, mun faðir minn elska hann, og ég mun elska hann og sjálfur birtast honum."
22 Júdas (ekki Júdas Ískaríot, heldur nafni hans) sagði þá við hann: „Herra, hvers vegna vilt þú einungis opinbera þig fyrir okkur, lærisveinunum, en ekki fyrir heiminum?"
23 „Vegna þess að ég vil aðeins opinbera mig þeim sem elska mig og hlýða mér," svaraði Jesús. Síðan bætti hann við: „Faðirinn mun einnig elska þá og við munum koma til þeirra og búa hjá þeim. 24 Sá sem óhlýðnast mér, sýnir þar með að hann elskar mig ekki. Takið eftir, að þetta svar við spurningu ykkar er ekki mitt svar, heldur föðurins sem sendi mig.