Publicidade

João 14

1 Látið ekki óttann tökum á ykkur. Treystið Guði og treystið mér. 2,3 Heima hjá föður mínum eru margar vistarverur og ég ætla búa þær undir komu ykkar. Þegar allt er reiðubúið, kem ég aftur og sæki ykkur, svo þið getið verið hjá mér alla tíð. Ef þessu væri öðruvísi varið, hefði ég sagt ykkur það. 4 En vitið þið hvert ég fer og hvernig á komast þangað."

5 Nei, það vitum við ekki," sagði Tómas. Við höfum ekki hugmynd um hvert þú ætlar, og hvernig ættum við þá rata þangað?"

6 Jesús svaraði: Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemst til föðurins nema hann trúi á mig. 7 Ef þið hafið þekkt mig, þá þekkið þið einnig föður minn. Héðan í frá þekkið þið hann og hafið þegar séð hann."

8 Herra," sagði Filippus, sýndu okkur föðurinn og það nægir okkur."

9 Filippus," svaraði Jesús, þekkir þú mig ekki enn, eftir allan þennan tíma sem við höfum verið saman? sem hefur séð mig, hefur séð föðurinn. Hvers vegna biður þú þá um sjá hann? 10 Trúir þú ekki ég í föðurnum og faðirinn í mér? Það sem ég segi, er ekki frá eigin brjósti, heldur frá föðurnum sem í mér er og vinnur verk sitt í gegnum mig. 11 Trúið þessu: Ég er í föðurnum og faðirinn í mér. Ef þið eigið erfitt með trúa því, þá minnist allra kraftaverkanna sem þið hafið séð mig gera.

12,13 Ég segi ykkur satt: sem á mig trúir, mun gera sömu kraftaverk og þau sem ég gerði, og jafnvel enn meiri, því ég fer til föðurins. Hvað sem þið biðjið föðurinn um, mun ég gera ef þið biðjið hann um það í mínu nafni. Allt það sem ég, sonurinn, geri fyrir ykkur, verður föður mínum til vegsemdar. 14 Biðjið um hvað sem þið viljið og notið nafn mitt, og þá mun ég svara bæn ykkar.

Fyrirheitið um heilagan anda

15,16 Ef þið elskið mig, hlýðið þá orðum mínum. Ég mun biðja föðurinn og hann mun gefa ykkur annan hjálpara, sem aldrei yfirgefur ykkur. 17 Þessi hjálpari er heilagur andi. Andinn sem leiðir menn í allan sannleikann. Heimurinn getur ekki tekið á móti honum, því heimurinn leitar hans ekki og þekkir hann ekki heldur. En þið þekkið hann, því hann lifir í ykkur og er með ykkur. 18 Ég mun ekki sleppa af ykkur hendinni skilja ykkur eina eftir; ég kem til ykkar. 19 Innan skamms yfirgef ég þennan heim en ég verð samt með ykkur, því ég lifi og þið munuð lifa. 20 Þegar ég er risinn upp frá dauðum, munuð þið skilja ég er í föður mínum, þið í mér, og ég í ykkur. 21 sem hlýðir mér, elskar mig og vegna þess hann elskar mig, mun faðir minn elska hann, og ég mun elska hann og sjálfur birtast honum."

22 Júdas (ekki Júdas Ískaríot, heldur nafni hans) sagði þá við hann: Herra, hvers vegna vilt þú einungis opinbera þig fyrir okkur, lærisveinunum, en ekki fyrir heiminum?"

23 Vegna þess ég vil aðeins opinbera mig þeim sem elska mig og hlýða mér," svaraði Jesús. Síðan bætti hann við: Faðirinn mun einnig elska þá og við munum koma til þeirra og búa hjá þeim. 24 sem óhlýðnast mér, sýnir þar með hann elskar mig ekki. Takið eftir, þetta svar við spurningu ykkar er ekki mitt svar, heldur föðurins sem sendi mig. 25 Þetta segi ég ykkur meðan ég er hjá ykkur. 26 En þegar faðirinn sendir ykkur hjálparann í minn stað og þegar ég tala um hjálparann, þá á ég við heilagan anda þá mun hann, andinn, fræða ykkur um margt og minna ykkur á allt sem ég hef sagt ykkur.

27 Frið skil ég eftir hjá ykkur, minn frið gef ég ykkur. Minn friður er ekki hverfull eins og friður sem heimurinn gefur, verið því hvorki kvíðafullir hræddir. 28 Minnist orða minna: Ég fer burt, en ég kem aftur til ykkar. Ef þið elskið mig í raun og veru, þá samgleðjist þið mér, því ég fara til föðurins, hans sem mér er æðri. 29 Þetta segi ég ykkur fyrir fram, svo þið trúið, þegar það gerist.

30 Tíminn sem ég hef til ræða þetta við ykkur styttist óðum, því hinn illi höfðingi þessa heims er á næsta leiti. Hann hefur ekki vald yfir mér, 31 en ég vil gera vilja föðurins, svo heimurinn fái vita ég elska föðurinn. Standið upp, við skulum fara."

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-