Hinn sanni vínviður
1 „Ég er hinn sanni vínviður og faðir minn er vínyrkinn. 2 Sérhverja grein sem ekki ber ávöxt, sker hann af, en hinar sem bera ávöxt, hreinsar hann, svo að þær beri enn meiri ávöxt. 3 Þið eruð þegar hreinir, vegna þess að þið hafið trúað orðum mínum. 4 Verið í mér, og þá lifi ég í ykkur. Því að eins og greinin getur ekki borið ávöxt, nema hún sé á vínviðinum, þannig getið þið ekki borið ávöxt án mín.
5 Ég er vínviðurinn, þið eruð greinarnar. Sá sem lifir í mér og ég í honum, hann ber mikinn ávöxt, en án mín getið þið alls ekkert gert.