Pular para o conteúdo
Publicidade

Jóhannes 15

Hinn sanni vínviður

1 Ég er hinn sanni vínviður og faðir minn er vínyrkinn. 2 Sérhverja grein sem ekki ber ávöxt, sker hann af, en hinar sem bera ávöxt, hreinsar hann, svo þær beri enn meiri ávöxt. 3 Þið eruð þegar hreinir, vegna þess þið hafið trúað orðum mínum. 4 Verið í mér, og þá lifi ég í ykkur. Því eins og greinin getur ekki borið ávöxt, nema hún á vínviðinum, þannig getið þið ekki borið ávöxt án mín.

5 Ég er vínviðurinn, þið eruð greinarnar. sem lifir í mér og ég í honum, hann ber mikinn ávöxt, en án mín getið þið alls ekkert gert. 6 Þeim sem hefur yfirgefið mig, verður kastað burt eins og ónýtum greinum. Þeim er síðan safnað saman og brennt. 7 Ef þið eruð í mér og hlýðið boðum mínum, þá biðjið um hvað sem þið viljið og það mun veitast ykkur! 8 Þeir sem eru sannir lærisveinar mínir, bera mikinn ávöxt og verða föður mínum til dýrðar.

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.

Veja também