13 Og nú skal ég segja ykkur hvernig við getum prófað kærleikann: Sá elskar mest, sem fórnar lífi sínu fyrir vini sína. 14 Þið eruð vinir mínir, ef þið gerið eins og ég segi. 15 Ég kalla ykkur ekki framar þjóna, því að húsbóndinn getur ekki treyst þjónum sínum. Þið eruð vinir mínir og því til staðfestingar hef ég sagt ykkur allt sem faðirinn sagði mér.