11 Nú yfirgef ég þennan heim og ég skil þá eftir og kem til þín. Heilagi faðir, varðveittu alla þá sem þú hefur gefið mér, svo þeir séu sameinaðir, rétt eins og við, og enginn verði þar undanskilinn. 12 Þann tíma sem ég hef verið hér hef ég gætt allra þeirra sem þú gafst mér. Ég stóð vörð um þá, svo að enginn þeirra týndist, nema sá sem hlaut að glatast, eins og ritningin hafði sagt fyrir um.