Publicidade

João 17

20 Ég bið ekki aðeins fyrir þessum mönnum, heldur einnig fyrir þeim sem síðar munu trúa á mig fyrir orð þeirra. 21 Faðir, þeir eiga allir að vera eitt eins og við – þú og ég – erum eitt. Þú ert í mér og ég í þér, og þannig eiga þeir einnig að vera í okkur, til þess að heimurinn trúi að þú hafir sent mig.

22 Dýrðina, sem þú gafst mér, hef ég gefið þeim – svo að þeir séu eitt eins og við – 23 ég í þeim og þú í mér – allir fullkomlega sameinaðir þannig að heimurinn komist að raun um að þú hafir sent mig og sjái að þú elskar þá, jafn heitt og þú elskar mig.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-22_10-02-25-