23,24 Þegar hermennirnir höfðu krossfest Jesú, skiptu þeir fötum hans í fjóra hluta, svo að hver fékk sinn hlut. Síðan sögðu þeir: „Við skulum ekki skipta kyrtlinum í fernt, því að hann er prjónaður og hvergi samsettur, við skulum heldur varpa hlutkesti um hann." Þar með rættist ritningarstaður sem segir svo: „Þeir skiptu með sér klæðum mínum og vörpuðu hlutkesti um kyrtil minn."
25 Það var einmitt þetta sem þeir gerðu. Nálægt krossi Jesú stóð María móðir hans, María móðursystir hans, kona Kleófasar og María Magdalena. 26 Þegar Jesús sá móður sína standa þar hjá nánasta vini sínum, sagði hann við hana: „Hann er sonur þinn."
27 Síðan sagði hann við mig: „Hún er móðir þín." Frá þeirri stundu tók ég hana inn á heimili mitt.