Pular para o conteúdo
Publicidade

João 2

Brúðkaupið í Kana

1 Tveim dögum síðar var móðir Jesú boðin í brúðkaup til bæjarins Kana í Galíleu. 2 Jesús var einnig boðinn, ásamt lærisveinum sínum. 3 Meðan á veislunni stóð kláraðist vínið. Móðir Jesú gekk þá til hans og sagði honum þessi vandræði.

4 Ég get ekki hjálpað þér núna," sagði hann, minn tími er enn ekki kominn." 5 En móðir hans sagði við þjónana: Gerið allt eins og hann segir ykkur."

6 Þarna stóðu sex steinker, sem notuð voru við ákveðna trúarsiði, og tók hvert þeirra um hundrað lítra.

7,8 Jesús sagði þjónunum fylla þau af vatni. því búnu sagði hann: Takið smásopa af þessu og færið veislustjóranum."

9 Þegar veislustjórinn bragðaði á vatninu, sem var orðið víni, varð hann undrandi því hann vissi ekki hvaðan það var komið (þótt þjónarnir vissu það). Hann kallaði þá á brúðgumann.

10 Þetta er frábært vín!" sagði hann. En þú ert ekki eins og aðrir. Flestir bera fyrst fram besta vínið, en þegar menn eru orðnir ölvaðir og kæra sig ekki um meira, þá eru teknar fram ódýru tegundirnar. Þú hefur hins vegar geymt það besta þar til síðast."

11 Þetta fyrsta kraftaverk sitt gerði Jesús í Kana í Galíleu og opinberaði með því dýrð sína. Það varð til þess lærisveinarnir trúðu hann væri Kristur.

Veja também