Publicidade

João 2

Brúðkaupið í Kana

1 Tveim dögum síðar var móðir Jesú boðin í brúðkaup til bæjarins Kana í Galíleu. 2 Jesús var einnig boðinn, ásamt lærisveinum sínum. 3 Meðan á veislunni stóð kláraðist vínið. Móðir Jesú gekk þá til hans og sagði honum þessi vandræði.

4 Ég get ekki hjálpað þér núna," sagði hann, minn tími er enn ekki kominn." 5 En móðir hans sagði við þjónana: Gerið allt eins og hann segir ykkur."

6 Þarna stóðu sex steinker, sem notuð voru við ákveðna trúarsiði, og tók hvert þeirra um hundrað lítra.

7,8 Jesús sagði þjónunum fylla þau af vatni. því búnu sagði hann: Takið smásopa af þessu og færið veislustjóranum."

9 Þegar veislustjórinn bragðaði á vatninu, sem var orðið víni, varð hann undrandi því hann vissi ekki hvaðan það var komið (þótt þjónarnir vissu það). Hann kallaði þá á brúðgumann.

10 Þetta er frábært vín!" sagði hann. En þú ert ekki eins og aðrir. Flestir bera fyrst fram besta vínið, en þegar menn eru orðnir ölvaðir og kæra sig ekki um meira, þá eru teknar fram ódýru tegundirnar. Þú hefur hins vegar geymt það besta þar til síðast."

11 Þetta fyrsta kraftaverk sitt gerði Jesús í Kana í Galíleu og opinberaði með því dýrð sína. Það varð til þess lærisveinarnir trúðu hann væri Kristur.

12 Eftir brúðkaupið fór Jesús til Kapernaum, ásamt móður sinni, bræðrum og lærisveinum, og voru þau þar í nokkra daga.

Musteri ekki markaður

13 leið páskum og hélt Jesús því til Jerúsalem. 14 Á musterissvæðinu hann kaupmenn sem seldu nautgripi, kindur og dúfur, er nota átti sem fórnardýr. Þar sátu einnig menn við borð og skiptu peningum. 15 Jesús bjó þá til svipu úr köðlum og rak þá alla út, einnig féð og nautgripina, dreifði smápeningum þeirra sem skiptu myntinni, út um allt gólf og velti um borðum þeirra. 16 Því næst gekk hann til dúfnasalanna og sagði við þá: Út með þetta! Þið hafið ekkert leyfi til breyta húsi föður míns í markað!"

17 Þetta minnti lærisveinana á spádóm í Biblíunni, sem þannig hljóðar: Umhyggja fyrir húsi Guðs mun ekki láta mig í friði."

18 Hvaða rétt hefur þú til reka þá út?" spurðu leiðtogar fólksins hranalega. Ef þú hefur vald þitt frá Guði, sýndu okkur þá kraftaverk því til sönnunar."

19 ," svaraði Jesús, þetta kraftaverk skuluð þið : Brjótið þennan helgidóm niður og ég mun reisa hann á þrem dögum!"

20 Hvað þá!" hrópuðu þeir. Það tók fjörutíu og sex ár byggja þetta musteri, en þykist þú geta reist það á þrem dögum?" 21 Með orðinu helgidómur" átti Jesús við líkama sinn. 22 Eftir upprisu hans minntust lærisveinar hans þessara orða, og skildu það sem hann tilnefndi úr Biblíunni, átti við hann sjálfan og rættist allt.

23 Kraftaverkin sem Jesús gerði í Jerúsalem yfir páskahátíðina, sannfærðu marga um hann væri í raun og veru Kristur. 24,25 En hann treysti ekki þessu fólki, því hann þekkti hugsanir þess fullkomlega og vissi hve menn eru fljótir skipta um skoðun!

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-