19 Þetta kvöld komu lærisveinarnir saman og læstu að sér af ótta við leiðtoga þjóðarinnar. En skyndilega stóð Jesús þar mitt á meðal þeirra.
„Friður sé með ykkur!" sagði hann.
20 Því næst sýndi hann þeim hendur sínar og síðusárið. Lærisveinarnir urðu mjög glaðir er þeir sáu Drottin.
21 Þá talaði hann aftur til þeirra og sagði: „Friður sé með ykkur! Eins og faðirinn sendi mig, sendi ég ykkur líka." 22 Síðan blés hann á þá og sagði: „Meðtakið heilagan anda. 23 Ef þið fyrirgefið einhverjum syndir hans, þá eru þær fyrirgefnar. Ef þið neitið honum um fyrirgefningu, þá fær hann hana ekki."