Pular para o conteúdo
Publicidade

João 20

Tómas efasemdamaður

24 Einn af lærisveinunum, Tómas, kallaður tvíburinn", var ekki viðstaddur þegar þetta gerðist. 25 Seinna, þegar hinir sögðu honum þeir hefðu séð Drottin, svaraði hann: Ég trúi því ekki, nema ég sjái sárin eftir naglana í lófum hans og geti stungið fingrum mínum í þau og lagt höndina á síðusárið."

26 Viku síðar voru lærisveinarnir aftur samankomnir og í þetta sinn var Tómas með þeim. Dyrunum hafði verið læst, en skyndilega og á sama hátt og áður stóð Jesús á meðal þeirra og sagði: Friður með ykkur!"

27 Síðan sagði hann við Tómas: Stingdu fingri þínum í lófa mér og leggðu höndina á síðusárið. Vertu ekki vantrúaður heldur trúaður."

28 Drottinn minn og Guð minn!" sagði Tómas.

29 Jesús sagði þá við hann: Þú trúðir af því þú hefur séð mig, en sælir eru þeir sem ekki sáu, en trúðu þó!"

Veja também