Morgunverður við sólarupprás
1 Seinna birtist Jesús lærisveinunum á ný og þá við Galíleuvatnið. Það gerðist á þennan hátt:
2 Nokkrir okkar voru þar, Símon Pétur, Tómas, „tvíburinn", Natanael frá Kana í Galíleu, Jakob bróðir minn og ég, og tveir aðrir lærisveinar.
3 „Ég ætla út að fiska," sagði Símon Pétur.
„Við komum með þér," sögðum við hinir. Við fórum en urðum ekki varir alla nóttina. 4 Við sólarupprás sáum við mann standa á ströndinni en við þekktum hann ekki.
5 Hann kallaði til okkar og sagði: „Hafið þið fengið nokkuð, drengir?"
„Nei," svöruðum við.
6 „Kastið þá netinu hægra megin við bátinn og þá munuð þið fáʼann!" kallaði hann. Þetta gerðum við og þá fylltist netið af fiski og var mergðin slík að við gátum ekki innbyrt það.
7 Þá sagði ég við Pétur: „Þetta er Drottinn!" Þá snaraði Pétur sér úr treyjunni, stökk út í og synti að landi. 8 Við hinir vorum kyrrir í bátnum og drógum netið, sem var alveg fullt, á eftir okkur þennan spöl, sem við áttum ófarinn í land. 9 Þegar þangað kom, sáum við að þar hafði verið kveiktur eldur. Einnig var þar steiktur fiskur og brauð.
10 „Komið hingað með nokkra af fiskunum, sem þið veidduð," sagði Jesús. 11 Símon Pétur fór þá og dró netið á land og taldi úr því 153 stóra fiska. En þótt fjöldinn væri slíkur, hafði netið ekki rifnað.