15 Að morgunverðinum loknum, sagði Jesús við Símon Pétur: „Símon Jónasson, elskar þú mig meira en þeir hinir?"
„Já," svaraði Pétur, „þú veist að ég elska þig."
Þá sagði Jesús við hann: „Gættu lamba minna."
16 Jesús endurtók spurninguna og sagði: „Símon Jónasson, elskar þú mig í raun og veru?"
„Já, Drottinn," svaraði Pétur, „þú veist að ég elska þig." „Annastu sauði mína," sagði Jesús.
17 Og í þriðja sinn spurði Jesús hann: „Símon Jónasson, ert þú sannur vinur minn?"
Pétur varð hryggur þegar hann heyrði Jesú spyrja þess sama í þriðja sinn og svaraði: „Drottinn, þú þekkir hjarta mitt og veist að ég elska þig."
„Gæt þú sauða minna," svaraði Jesús.