Leynilegur gestur
1 Kvöld eitt, eftir að dimmt var orðið, 2 kom einn af ráðherrum Gyðinga, farísei að nafni Nikódemus, til Jesú að ræða við hann. „Herra," sagði hann, „við vitum allir að Guð hefur sent þig til að fræða okkur, það sanna kraftaverk þín svo að ekki verður um villst."
3 „Ég segi þér satt, Nikódemus," sagði Jesús, „ef þú endurfæðist ekki muntu aldrei komast inn í guðsríki."
4 „Endurfæðist?" spurði Nikódemus, „hvað er nú það? Hvernig getur gamall maður komist aftur inn í kvið móður sinnar og fæðst að nýju?"
5 „Það sem ég á við," svaraði Jesús, „er þetta: Ef maðurinn fæðist ekki af vatni og anda, getur hann ekki komist inn í guðsríki. 6 Maður getur aðeins fætt af sér aðra mannveru, en heilagur andi gefur nýtt líf frá himnum. 7 Vertu því ekki hissa þótt ég segi að þú verðir að fæðast að nýju! 8 Þetta er eins og með vindinn. Þú heyrir í honum en veist samt ekki hvaðan hann kemur eða hvert hann fer. Þannig er það einnig með anda Guðs. Við vitum ekki hverjum hann gefur næst líf frá himni."